16.3.2010 | 14:41
Hráskinnaleikur
Eftir lestur frétta undanfarið má öllum vera ljóst að svigrúm er til afskrifta hjá bönkunum. Hins vegar setur að mér sorg að verða vitni að því að þingmenn geta ekki komist út úr pólitískum skotgröfum, eins og þessi eflaust ágæta stúlka, Eygló Harðardóttir. Þingmenn mættu vita af því að þeim er falið að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna, kjósenda. Þingmenn undanfarinna ára brugðust hrapallega því trausti sem þeim var sýnt og í raun skil ég ekki hvernig þeim er sætt eftir algert kerfishrun. Mig minnir reyndar að téð Eygló hafi komið ný inn á þing eftir síðustu kosningar og því skrifa ég þetta frumhlaup á ungæðishátt. Allir þingmenn eiga að vita að hagsmunir þjóðarinnar eru framar hagsmunum flokkana. Og hana nú.
Bankarnir hafa svigrúm til afskrifta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Theo - Gjöf Guðs
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.